Kafli 2. Fyrsti draumur
Mána
Kviss!!! Vertu alveg kyrr. Freysi er
þetta þú. Já hafðu alveg hljótt, þau eru nærri. Hver? Hvíslaði
Máni. Kviss!! Ekki hver heldur þursar. Þursar? Kviss!! Já þursarnir
frá krummafót og hafðu nú alveg hljótt. Máni var svolítið hissa en
þorði ekki að spyrja meir. Hann treysti Freysa, þó svo að Freysi
var nú orðinn jafnstór og hann sjálfur og gat talað. Hann kannaðist
heldur ekkert við staðinn sem hann var á, falinn undir runna á
miðju engi og ekkert nema bleikir þursar í kringum þá.
Þursarnir litu skringilega út.
Öðruvísi en Máni hafði nokkurtímann séð. Hann hafði reyndar aldrei
séð þursa áður en tók eftir því að þeir voru allir í krummafót og
rangeigðir. Hann hefði heldur aldrei séð fötin sem hann var í áður.
Blá ullarpeysa með hettu og gráum pokalegum ullarbuxum.
Kviss! Þau eru kominn framhjá við
skulum drífa okkur til Lúðvíks og kíkja á hvort hann geti gefið
okkur skjól og mat ég er sár svangur. Máni og Freysi koma að tréi
efir örlítinn spöl. Þetta er stærsta tré sem ég hef séð. Já þetta
er tréið hans Lúðvíks. Hann býr hér einn og lætur sér leiðast. Það
er það skemmtilegasta sem hann gerir.
Freysi gekk að hurðinni og tók í
húninn, er allt í lagi að valsa bara inn um dyrnar án þess að
dyngla eða neitt spurði Máni. Já svo sannarlega ef þú bankar eða
kallar þá nennir hann hvort sem ekki að svara þér.
Máni gekk með Freysa inn. Tréið var
holt að innan og þar myndaðist risastór kringlótt íbúð. Í miðjunni
var rúm þar sem skringileg vera lá, Máni spurði Freysa er þetta
letidýr? Ég sá svona í sjónvarpinu um daginn, þeir sofa 23. tíma á
dag og hreyfa sig löturhægt. Lúðvík rumskaði og kallaði dimmri en
rólegri röddu. Hver ert þú? Ég heiti Máni og er besti vinur Freysa.
Sjónvarpinu hvaða land er það þar sem þú sást ættingja mína?Nei
ekki land sjónvarp er kassi þar sem allskonar skemmtilegir hlutir
birtast á einni hliðinni. Dýr, sögur og fréttir. Maður getur starað
endalaust á hann. Stara, það hljómar eins og eitthvað sem ég er
góður í. Já, pabbi
segir að það sé búið til fyrir letidýr.
Pabbi minn segir reyndar ímislegt.
Eins og um daginn sagði hann að hann væri í feluleik, en þá var það
eitthvað skrítinn feluleikur því konan frá næsta húsi faldi sig á
sama stað. Hvernig á þá einhver að vinna leikinn ef báðir finnast í
einu.
Frh. Næstu viku